Fara í efni

Aukasýning af Djáknanum á Myrká – Sagan sem aldrei var sögð

Leikarar sýningarinnar eru Birna Pétursdóttir og Jóhann Axel Ingólfsson.
Leikarar sýningarinnar eru Birna Pétursdóttir og Jóhann Axel Ingólfsson.

Þar sem hryllilega gamanverkið Djákninn á Myrká – Sagan sem aldrei var sögð fékk framúrskarandi viðbrögð verður einni aukasýningu bætt við um helgina. Sýningum á leikritinu átti að ljúka um síðustu helgi en aukasýningin fer fram í Samkomuhúsinu laugardaginn 1. júní klukkan 20. 

Djákninn á Myrká – Sagan sem aldrei var sögð byggir á einni þekktustu draugasögu Íslandssögunnar. Í leikverkinu er sagan skoðuð frá ýmsum sjónarhornum, lesið á milli línanna og skáldað í eyðurnar.  

Leikstjóri er Agnes Wild, um leikmynd- og búninga sér Eva Björg Harðardóttir, tónlistin er í höndum Sigrúnar Harðardóttur en leikarar eru Jóhann Axel og Birna Pétursdóttir.  

Sýningin er samstarfsverkefni leikhópsins Miðnættis og Leikfélags Akureyrar. 

Til baka