Fara í efni

Auglýst eftir viðburðum Listasumars

Listasumar á Akureyri 2020 verður 3. júlí til 31. júlí. Augýst er eftir áhugaverðum og skemmtilegum hugmyndum að listasmiðjum og viðburðum.

Í boði eru 23 styrkir að verðmæti 1.400.000 kr. samanlagt. Styrkjum fylgir afnot af rými í Deiglunni, Listasafninu á Akureyri, Menningarhúsinu Hofi, Davíðshúsi, Minjasafninu á Akureyri eða Rósenborg ásamt aðgangi að kynningarefni Listasumars og tækjabúnaði í ákveðnum rýmum.

Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar um styrkina er að finna á heimasíðunni listasumar.is.

Síðasti skiladagur umsókna er til og með 16. febrúar nk.

Til baka