Fara í efni

Árni Pétur leikur í Hamingjudögum

Enginn annar en stórleikarinn Árni Pétur Guðjónsson leikur á móti Eddu Björgu Eyjólfsdóttur í verkinu Hamingjudagar sem sýnt verður í Black Box í Menningarhúsinu Hofi í byrjun september!
 
Árni Pétur hefur leikið í fjölda kvikmynda á borð við Agnes, Sódóma Reykjavík, Stella í Orlofi, Tár úr steini og Vandarhögg eftir Hrafn Gunnlaugsson en sú var tekin upp á Akureyri. Hann hefur einnig leikið í fjölda uppsetninga í leikhúsunum og þar á meðan einleiknum Svikarinn sem færði honum tilnefningu til Grímunnar, Rómeó og Júlíu með Vesturporti og Svört Kómedía hjá Leikfélagi Akureyrar í leikstjórn Maríu Sigurðardóttur. Að ógleymdri sprenghlægilegu sjónvarpsseríunni Hæ Gosa sem öll var tekin upp á Akureyri. Svo er ekkert verra að hann á ættir að rekja hingað norður en afi hans, Pétur Sigurgeirsson, var frá Oddstöðun í N-Þingeyjarsýsu.
 
Við bjóðum Árna Pétur velkominn norður!

 

 
Hamingjudagar í Hofi 2, 3, 9. og 10. september
Höfundur: Samuel Beckett
Leikarar: Edda Björg Eyjólfsdóttir og Árni Pétur Guðjónsson
Leikstjórn: Harpa Arnardóttir
 
Athugið aðeins TVÆR sýningarhelgar!

 

 

Til baka