Fara í efni

Tvöfallt áramótaskop Ara Eldjárns um helgina

Um helgina mun Ari Eldjárn mæta með sitt Áramótaskop í Hof. Ari verður með tvær sýningar laugardaginn 18. desember. Uppselt er á sýninguna klukkan 19 en enn eru miðar til á síðari sýninguna sem hefst klukkan 22. 

Ari er fyrir löngu orðinn einn allra vinsælasti uppistandari þjóðarinnar og hefur auk þess getið sér góðs orðs víða erlendis fyrir gamansýningar sínar. Árið 2020 varð hann fyrsti íslenski skemmtikrafturinn til að fá gamansýningu tekna til sýninga hjá bandarísku streymisveitunni Netflix en þætti hans Pardon my Icelandic var dreift á heimsvísu til fleiri milljóna manna, sem horfðu á og höfðu gaman af. Pardon my Icelandic vann Edduna árið 2021 fyrir skemmtiþátt ársins.

Þetta er í fimmta sinn sem þessi geysivinsæla sýninga Ara er sett á svið en síðast seldust allar sýningar upp og mættu um 14.000 manns til að kveðja gamla árið með hlátrasköllum. Hver sýning er einstök og mun áherslan vera lögð á að kveðja árið með eftirminnilegum hætti, í bland við annað efni. Ekki missa af þessu einstaka Áramótaskopi í Hofi!

Kaupa miða hér.

 

Heimilt er að hafa allt að 500 manns í rými á viðburðum að uppfylltum skilyrðum: Allir gestir, fæddir 2015 og fyrr, verða að framvísa vottorði um neikvætt hraðpróf sem ekki má vera eldra en 48 klst. eða PCR prófi. Vottorð um nýlega COVID-19 sýkingu eru einnig tekin gild (eldra en 14 daga en yngra en 180 daga).
Nauðsynlegt er að bóka tíma í hraðpróf. Prófin þarf að taka á viðurkenndum stöðum. Heimapróf eru ekki tekin gild. Hraðprófin eru frí.
 
Bóka hraðpróf

Strandgata 31
Opnunartími fyrir hraðpróf alla daga frá kl: 11:15 til 12:30 nema föstudaga og laugardaga til kl. 14.00.

Hvannavellir 10 (gamla Hjálpræðishershúsið)
Opnunartími er:

Mánudaga til miðvikudaga 8:15 – 15:45
Fimmtudaga 8 - 18
Föstudaga 8 – 20
Laugardaga 10 – 16
Sunnudaga 10 – 14

Til baka