Fara í efni

And Björk, of course... sýningar hefjast í Borgarleikhúsinu 4. apríl

Leikritið And Björk, of course.. verður sýnt í Borgarleikhúsinu í apríl. Miðasala er hafin á tix.is og verður frumsýning 4. apríl. Um gestasýningu Leikfélags Akureyrar er að ræða en sýningin var sýnd í Samkomuhúsinu síðustu vikurnar við góðar undirtektir.

Leikritið And Björk, of course... eftir Þorvald Þorsteinsson er drepfyndinn og hrollvekjandi leiðangur um sjálfsmyndir einstaklinga og þjóðar. Verkið var fyrst frumsýnt í Borgarleikhúsinu árið 2002 í leikstjórn Benedikts Erlingssonar og hlaut einróma lof gagnrýnenda. 

Athugið að sýningin er merkt Trigger Warning en í sýningunni er fjallað um eða ýjað að ofbeldi, kynferðisofbeldi, kynþáttafordómum, einelti, fötlunarfordómum, sjálfsvígum og annað sem getur vakið óþægilegar og erfiðar tilfinningar hjá áhorfendum. Aldursviðmið: 16 ára og eldri.

Til baka