Fara í efni

Áheyrnarprufur fyrir Skilaboðaskjóðuna

Við leitum að hæfileikaríkum krökkum á aldrinum 9-18 ára til að fara með ýmis hlutverk í stórsýningunni Skilaboðaskjóðan sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir í febrúar 2027.

Öll börn og ungmenni eru hvött til þess að láta ljós sitt skína og sækja um, óháð kyni, uppruna eða reynslu.

Áheyrnarprufur fara fram í Samkomuhúsinu á Akureyri þann 5. september 2026.

Skráningu lýkur 3. september.

Undirbúningur

Allir krakkar sem taka þátt þurfa að læra lagið „Hugrenningar Rauðhettu“, stutta senu með Putta litla og einfalda dansrútínu.

Einnig er hægt að undirbúa sig með því að hlusta á Skilaboðaskjóðuna á Spotify.

Fyrirkomulag

Prufur fara fram í Samkomuhúsinu laugardaginn 5. september og mögulegt er að einhver börn verði boðuð áfram í áframhaldandi prufur þann 6. september.

Umsækjendur fá sendar nánari upplýsingar, um tímasetningar og fleira, þegar nær dregur áheyrnarprufum.

Fyrirspurnir sendist á thorunn@mak.is

 

Hlökkum til að sjá ykkur!

Til baka