Fara í efni

Afmælisvika Tónlistarfélags Akureyrar í Hofi

Tónlistarfélag Akureyrar fagnar 75 ára afmæli sínu á árinu og hátíðarhöldin hefjast með afmælisviku í Hofi dagana 22. – 28. janúar. Þá mun Tónlistarfélagið bjóða upp á átta fjölbreytta tónleika.  Þar má nefna kórahátíð, einleik á flygil, einsöng, kammer-, barna-, rokk- og jazzfusiontónleika. Það ættu því allir tónlistarunnendur að finna eitthvað við sitt hæfi í Hofi í næstu viku, en upplýsingar um alla viðburðina má finna á mak.is.

 

Til baka