Fara í efni

Afmælistónleikar Tónlistarfélagsins í beinu streymi

Afmælishátíð Tónlistarfélags Akureyrar til heiðurs byltingartónskáldinu Ludwig van Beethoven verður haldin miðvikudaginn 16. desember kl 20. 

Tónleikarnir, “Hinn bjarti Beethoven” fara fram í Menningarhúsinu Hofi en verður einnig streymt beint á www.mak.is

Verkin á efnisskránni einkennast af birtu, gleði og krafti og tilheyra þeim tíma í lífi Beethovens áður en hann fór að missa heyrn að ráði. Þetta eru Sónata í A-dúr opus 68 fyrir píanó og selló, Sjö tilbrigði um stef úr Töfraflautunni Wo O 46 fyrir píanó og selló og Tríó í B dúr opus 11 fyrir klarinett, selló og píanó. Einnig verður flutt Aría úr Töfraflautunni eftir Mozart.

Í upphafi tónleikanna leikur hópur sellónemenda Óðinn til gleðinnar úr 9. Sinfóníunni.

Fyrir tónleikana mun strengjakvartett nemenda leika verk eftir Beethoven í Naustinu.

Nemendurnir stunda hljóðfæranám við Tónlistarskólann á Akureyri og í Tónlistarskóla Eyjafjarðar.

 

Flytjendur eru Ásdís Arnardóttir selló, Helena Guðlaug Bjarnadóttir sópran, Jón Sigurðsson píanó, Michael Jón Clarke baritón, Michael Weaver klarinett og Þórarinn Stefánsson píanó.

 

Aðgangur á tónleikana er ókeypis en frjáls framlög eru vel þegin.

 

Menningarsjóður Akureyrar, Akureyrarbær og Tónlistarsjóður styrkja þennan viðburð.

 

Til baka