Fara í efni

Afmælistónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands

Hátíðartónleikar í tilefni að 25 ára afmæli Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og formlegrar opnunar kvikmyndatónlistarverkefnisins Sinfonia Nord fara fram í Menningarhúsinu Hofi 24. mars. Sérstakur heiðursgestur verður Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.

Tvö mögnuð meistaraverk og frumflutningur á norðlenskri nýsköpun á 25 ára afmælistónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.

Frumflutt verður nýtt verk eftir eitt af höfuðtónskáldum Akureyringa, Atla Örvarsson. Verkið er sérstaklega samið vegna þessara tímamóta. Þá verður flutt hið dulúðlega stórvirki Scheherazade eftir Rimsky-Korsakov af stórri hátíðarhljómsveit SN. Verkið er svo sannarlega seiðmagnað enda unnið upp úr sögunum úr þúsund og einni nótt.

Guðmundur Óli Gunnarsson hljómsveitarstjóri og dóttir hans, Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir sellóleikari, munu flytja saman ásamt hljómsveitinni einn fallegasta sellókonsert sögunnar, sellókonsert nr. 2 eftir Dvorák.  

Guðmundur Óli Gunnarsson hljómsveitarstjóri vann mikilvægt starf fyrir Norðurland í ein 23 ár sem aðalhljómsveitarstjóri SN og dóttir hans, Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir sellóleikari, steig sín fyrstu skref í Tónlistarskólanum á Akureyri og lék með SN og föður sínum á fjölmörgum tónleikum. Nú heimsækja þau Akureyri á ný, staðinn sem hafði mikil áhrif á listfengi þeirra, og leggja sitt af mörkum til að gera þessa hátíðlegu stund eftirminnilega í hugum áheyrenda.

Til baka