Fara í efni

Æfingar hafnar á verkinu Krufning á sjálfsmorði

Marta Nordal ásamt útskriftahópi LHÍ.
Marta Nordal ásamt útskriftahópi LHÍ.

Æfingar eru hafnar á leikverkinu Krufning á sjálfsmorði eftir Alice Birch í þýðingu Sölku Guðmundsdóttur. Sýningin er samstarf Leikfélags Akureyrar, Þjóðleikhús og Listaháskóla Íslands og er útskriftarverkefni leikararbrautar Listaháskóla Íslands.

Krufning á sjálfsmorði fjallar um þrjár kynslóðir kvenna þar sem áhrif sorgar og áfalla vara mann fram af manni. Hvað mótar persónu okkar mest? Erfðir, uppeldi eða samfélagsleg áhrif?

Alice Birch eitt áhugaverðasta unga leikskáld Breta. Krufning á sjálfmorði var frumsýnt í Royal Court leikhúsinu í London í leikstjórn Katie Mitchell og hlaut Susan Smith Blackburn verðlaunin árið 2018.

 

„Það er ótrúlega gefandi að takast á við þetta krefjandi og mikilvæga leikrit með leikurum framtíðarinnar,“ segir Marta Nordal leikstjóri sýningarinnar og leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar.

 

Leikarar eru Almar Blær Sigurjónsson, Björk Guðmundsdóttir, Ellen Margrét Bæhrenz, Fannar Arnarson, Kristrún Kolbrúnardóttir,Níels Thibaud Gierard, Örn Gauti Jóhannsson, Stefán Þór Þorgeirsson og Urður Bergsdóttir

Leikmynd og búningar í höndum Brynju Björnsdóttur en um lýsingu sér Ólafur Ágúst Stefánsson.

Krufning á sjálfsmorði verður frumsýnt í Samkomuhúsinu á Akureyri 21. maí og flyst svo yfir í Kassann í Þjóðleikhúsinu 27. maí.

 

Til baka