Fara í efni

Aðeins FIMM sýningar eftir

Nú fer að sjá fyrir endann á sýningum á hinni drepfyndu Njálu á hundavaði með hljómsveitinni Hundi í óskilum. Sýningin sló í gegn í Borgarleikhúsinu í fyrra og hafa Norðlendingar tekið henni opnum örmum. En nú eru aðeins fimm sýningar eftir í Samkomuhúsinu og öllum þeim sem eiga eftir að sjá sýninguna er bent á að tryggja sér miða strax á mak.is.

Þessi sýning er óborganleg skemmtun!

Til baka