Fara í efni

Aðalsteinn Bergdal, einn af fyrstu atvinnuleikurum Leikfélags Akureyrar er látinn

Aðalsteinn Bergdal í hlutverki sínu sem Boolie Werthan í uppsetningu Leikfélags Akureyrar á
Aðalsteinn Bergdal í hlutverki sínu sem Boolie Werthan í uppsetningu Leikfélags Akureyrar á "Á ferð með frú Daisy" 1997
Aðalsteinn setti mark sitt á leiklistarlíf á Íslandi og átti meðal annars stóran þátt í mótun atvinnuleikhúss á Akureyri.
Leikferill hans hófst hjá félaginu árið 1967 og þegar það stóra skref var stigið að gera leikfélag Akureyrar að atvinnuleikhúsi árið 1973 var Aðalsteinn einn af fyrstu fastráðnu leikurunum þar.
Í gegnum árin nutu leikhúsgestir hæfileika hans í ótal hlutverkum og í hugum margra verður hann ávallt tengdur gleði, sköpunarkrafti og ógleymanlegum persónum sem lifa áfram í minningunni.
Aðalsteinn var ekki aðeins mikilvægur listamaður heldur líka kær samstarfsmaður og vinur margra innan veggja leikhússins. Framlag hans til íslensks menningarlífs verður seint fullþakkað. Við sendum fjölskyldu hans og ástvinum innilegar samúðarkveðjur og þökkum fyrir þær góðu minningar sem Aðalsteinn skilur eftir sig.
Takk fyrir allt, Alli.
"Rjúkandi ráð" 1969
"Hversdagsleg kraftaverk" 2002  
"Ævintýri á gönguför" 1974

Myndir eru eign og birtar með góðfúslegu leyfi  Minjasafnsins á Akureyri

Til baka