Á heimaslóðum í Hofi
Á heimaslóðum í Hofi
„Ég er gríðarlega spenntur og er það heiður að fá að koma að þessum viðburði, þá sérstaklega á heimaslóðum“ segir söngvarinn Gunnar Björn Jónsson sem stígur á svið í Hofi á opnunarviðburði nýstofnaðar Óperu næstkomandi sunnudag. Gunnar er einn fjögurra söngvara sem hafa verið ráðnir til Óperunnar. Söngurinn hefur fylgt honum frá unga aldri og leitt hann í gegnum fjölbreytt nám og verkefni á sviði tónlistar.
Ólíkir heimar mætast
Gunnar Björn er ættaður af Svalbarðsströnd þar sem hann ólst upp og steig sín fyrstu skref í tónlist. Áhugi hans á klassískum söng kviknaði þegar hann söng Út um grænar grundir í skólaleikriti Valsársskóla aðeins níu ára gamall. Síðar flutti Gunnar suður og stundaði nám við Söngskóla Sigurðar Demetz en þaðan lá leið hans til Mílanó þar sem hann lærði klassískan söng. Gunnar hefur þó ekki eingöngu lagt stund á tónlist, heldur er hann einnig lærður múrari og segir þessi tvö ólíku störf fara ágætlega saman. „Ég syng stundum í vinnunni, þá sérstaklega inni á ný flísalögðum baðherbergjum, enda hljómburðurinn einstaklega góður þar,“ segir Gunnar og brosir.
Opnunarviðburður Óperunnar hefur persónulega þýðingu fyrir Gunnar, enda tengist hann Hofi á fleiri en einn hátt. „Ég lærði í Tónlistarskólanum í Hofi en svo vann ég einnig við múrarastörf þegar húsið var reist.“ Það er því á margan hátt táknrænt fyrir Gunnar að stíga á svið í Hofi og fá að taka þátt í þessum sögulega viðburði.
Óperan er fyrir alla
Að mati Gunnars er stofnun Óperunnar mikilvægt skref í að kynna listformið fyrir breiðari hópi fólk. „Flestir sem fara á óperu í fyrsta skipti verða fyrir hughrifum. Hún getur komið svo verulega á óvart,“ segir Gunnar. Hann leggur áherslu á mikilvægi þess að óperan sé aðgengileg öllum og að skapaður sé vettvangur fyrir íslenskt tónlistarfólk til að starfa hér á landi. „Í gamla daga var óperan frekar tengd ákveðinni stéttaskiptingu en í dag búum við við þau forréttindi að hún er fyrir alla.“
Lífleg dagskrá í takt við nútímann
Á opnunarviðburðinum mætast ólíkir heimar þegar gestum gefst kostur á að kynnast ferðalagi óperunnar, allt frá Ítalíu til Íslands. Gunnar segir gesti mega vænta líflegrar og skemmtilegrar dagskrár þar sem alþjóðleg óperuverk verða sett í samhengi við íslenskan samtíma. Óperan mun einnig ferðast víða um land og meðal viðkomustaða eru Eskifjörður, Reykjanesbær og Skálholt.
Ásamt Gunnari stígur einvalalið listamanna á svið, það eru þau Hildigunnur Einarsdóttir, messó-sópran, Kristín Einarsdóttir Mäntylä, sópran og Kristján Jóhannesson, barítón, Jónína Björt Gunnarsdóttir, sópran, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Kór Akureyrarkirkju og Kammerkór Norðurlands en þau flytja nokkrar af fegurstu perlum óperusögunnar á meðan leikararnir Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Örn Árnason leiða áhorfendur í gegnum söguna. Handrit og leikstjórn er í höndum Ólafs Egils Egilssonar og tónlistarstjóri Óperunnar, Richard Schwennicke, stjórnar hljómsveit.
Töfrarnir í tónlistinni
Gunnar segir það mikinn heiður að taka þátt í þessum sögulega viðburði og fá tækifæri til að starfa með því öfluga fagfólki sem kemur að stofnun Óperunnar. Æfingar gangi einstaklega vel og mikil gleði og eftirvænting ríki meðal hópsins. „Tilfinningin sem maður fær þegar allt gengur upp, það eru bara töfrar,“ segir Gunnar.
Opnunarviðburður Óperunnar fer fram í Hofi sunnudaginn 18. október. Nánari upplýsingar og miðasala eru á menningarfelag.is.