Fara í efni

A! hefst á morgun fimmtudag

A! Gjörningahátíð hefst næstkomandi fimmtudag kl. 20 í Listasafninu og stendur til sunnudags. A! er fjögurra daga alþjóðleg gjörningahátíð sem haldin er árlega og nú í sjöunda sinn. Ókeypis er inn á alla viðburði. HÉR má sjá dagskrána.

Listamaðurinn Snorri Ásmundsson mun opna sjöundu víddina í Menningarhúsinu Hofi á laugardaginn á viðburðinum The 7th Dimension. Snorri Ásmundsson er þekktur fyrir tilraunir sínar til að hafa áhrif á samfélagið með ýmiskonar opnum viðburðum og uppákomum. Hann hefur oft verið kallaður óþekka barnið í íslensku listalífi. 

Sérstök dómnefnd valdi úr innsendum umsóknum listamanna og eru fjölbreyttir gjörningar og leikhústengd verk af öllum toga á dagskránni. Þátttakendur eru ungir og upprennandi listamenn, ásamt reyndum og vel þekktum gjörningalistamönnum og leikhúsfólki. Að þessu sinni fara gjörningarnir fram í Listasafninu á Akureyri, Menningarhúsinu Hofi, Deiglunni, Mjólkurbúðinni, Eyjafjarðarsveit og á Ketilkaffi.

Listamennirnir sem koma fram í ár eru: Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir og Liv Nome, Anna Richardsdóttir, Egill Logi Jónasson, Sigtryggur Berg Sigmundsson, Snorri Ásmundsson, Brák Jónsdóttir, Steinunn Gunnlaugsdóttir, Elisabeth Raymond, Amber Smits og Niklas Niki Blomberg, Hombre Rural og Libia Castro, Ólafur Ólafsson og Töfrateymið.

Gjörningahátíðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Leikfélags Akureyrar, Menningarhússins Hofs, LÓKAL alþjóðlegrar leiklistarhátíðar, Gilfélagsins, Myndlistarfélagsins, Listnámsbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri og Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar. Auk viðburða utan dagskrár (Off venue).

 

Til baka