Fara í efni

A! haldin í fimmta sinn

Gjörningahátíðin A! fer fram á Akureyri dagana 10. - 13. október næstkomandi. A! er fjögurra daga alþjóðleg gjörningahátíð sem haldin er árlega og er nú haldin í fimmta sinn. Hátíðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Menningarhússins Hofs, Leikfélags Akureyrar, LÓKAL alþjóðlegrar leiklistarhátíðar og Gilfélagsins. Samhliða A! fer vídeólistahátíðin Heim fram auk viðburða utan dagskrár (off venue). Hátt í 2000 gestir hafa sótt hátíðina hverju sinni og notið líflegra gjörninga.

Fjölbreyttir gjörningar og leikhústengd verk af öllum toga eru á dagskránni. Þátttakendur A! Gjörningahátíðar eru ungir og upprennandi listamenn, ásamt reyndum og vel þekktum gjörningalistamönnum og leikhúsfólki. Þátttakendur eru: Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Dustin Harvey, Einkasafnið, Florence Lam, Haraldur Jónsson, Íris Stefanía / Hljómsveitin Eva, Listahópurinn Kaktus, The Northern Assembly, Photo Studio »Schmidt & Li« , Rodney Dickson, Snorri Ásmundsson, Sunna Svavarsdóttir, Tales Frey, Tine Louise Kortermand / María Lilja Þrastardóttir.

Til baka