Fara í efni

A! Gjörningahátíð haldin í áttunda sinn

A! Gjörningahátíð fer fram á Akureyri dagana 6.-9. október næstkomandi. A! er fjögurra daga alþjóðleg gjörningahátíð sem haldin er árlega og nú í áttunda sinn. Ókeypis er inn á alla viðburði.
 
Þátttakendur eru ungir og upprennandi listamenn, ásamt reyndum og vel þekktum gjörningalistamönnum. Að þessu sinni fara gjörningarnir fram í Listasafninu á Akureyri, Menningarhúsinu Hofi, Hlöðunni í Litla-Garði, Deiglunni, Kaktus, Eyjafjarðarsveit og á Ketilkaffi.
 
A! Gjörningahátíð er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Leikfélags Akureyrar, Menningarhússins Hofs, Gilfélagsins, Listnámsbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri og Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar. Auk viðburða utan dagskrár (Off venue), þar á meðal er Pastel ritröð.
A! hlaut styrk úr Safnasjóði 2022.
 
Til baka