Fara í efni

Ritlistasmiðja - Bjarni Fritzson

Rithöfundurinn Bjarni Fritzson verður með ritlistasmiðju fyrir krakka í Hofi miðvikudaginn 18. maí klukkan 17.

Bjarni Fritzson mun kenna þátttakendum galdurinn bakvið að skrifa sjúklega fyndna, spennandi og skemmtilega metsölubók!!!!

Bjarni mun fara skref fyrir skref yfir ritferlið sem hann fer í gegnum þegar hann skrifar Orra óstöðvandi bækurnar sínar. Bjarni hefur hlotið Bókaverðlaun barnanna síðastliðin tvö ár.

Ritlistarsmiðjan er fyrir alla krakka á aldrinum 10-12 ára.

Viðburðurinn tekur eina klukkustund.  Fjöldi þátttakenda er takmarkaður.