Fara í efni
Dags Tími
19 .jún '18 20:00

Tónlistardagskrá í tali og tónum um líf skáldkonunnar Huldu
Helga Kvam, píanó og Þórhildur Örvarsdóttir, söngur

Unnur Benediktsdóttir Bjarklind var fæddist þann 6. ágúst 1881 og lést 10. apríl 1946. Hún skrifaði ljóð og prósa undir skáldanafninu Hulda. Eitt þekktasta ljóð hennar var ættjarðarljóðið Hver á sér fegra föðurland úr ljóðaflokknum Söngvar helgaðir þjóðhátíðardegi Íslands 17. júní 1944, samið í tilefni af lýðveldisstofnuninni 1944 og var annað tveggja ljóða sem vann samkeppni um hátíðarljóð.

Helga Kvam og Þórhildur Örvarsdóttir hafa í nokkur ár starfað saman sem dúett (píanó/söngur) og haldið saman marga þematengda tónleika þar sem efnistökin eru oftar en ekki ákveðin ljóðskáld/tónskáld bæði úr klassískum grunni og heimi dægurtónlistar. Á þessum tónleikum verða flutt lög íslenskra tónskálda við texta Huldu ásamt frumflutningi á tónlist eftir Daníel Þorsteinsson sem hann sem hann samdi sérstaklega fyrir Helgu og Þórhildi fyrir þessa dagskrá. Tónlistinni er fléttað saman við frásagnir af lífi Huldu og verkum hennar.

Tónleikarnir eru styrktir af Sóknaráætlun Norðurlands eystra, KEA, Dagskrá  Fullveldishátíðar og Listamannalaunum og unnir í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar, Menningarmiðstöð Þingeyinga og Minjasafnið á Akureyri.