Fara í efni

Áhrif Jórunnar Viðar ómetanleg

Hallfríður Ólafsdóttir segir Jórunni Viðar eitt af þeim tónskáldum sem náði að festa hönd á og vinna…
Hallfríður Ólafsdóttir segir Jórunni Viðar eitt af þeim tónskáldum sem náði að festa hönd á og vinna úr kjarna okkar íslenska arfs svo úr varð heillandi, rammíslensk tónlist.

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur þegar hljómsveitarverkið „Ólafur Liljurós“ eftir eitt af höfuðtónskáldum Íslendinga, Jórunni Viðar, verður flutt í fyrsta sinn í upprunagerð fyrir sinfóníuhljómsveit undir stjórn Hallfríðar Ólafsdóttur í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri þann 25. nóvember.

Jórunn Viðar, sem lést á síðasta ári, hefði náð aldarafmæli nú í desember en hún samdi tónlistina við söguna af riddaranum hjartahreina sem ballettverk fyrir Leikfélag Reykjavíkur árið 1952. Þá var verkið flutt í smækkaðri mynd en mun nú hljóma í fyrsta sinn á tónleikum með réttri stærð hljómsveitar og öllum þeim blæbrigðum sem Jórunn kallar fram með sinni alkunnu snilld í skrifum fyrir sinfóníska hljómsveit.

Jórunn Viðar var frumkvöðull á sviði ballett- og kvikmyndatónlistar hér á landi og samdi fyrstu íslensku kvikmyndatónlistina við myndina „Síðasti bærinn í dalnum“ auk fjölmargra þjóðþekktra sönglaga. „Það er mér mikið fagnaðarefni og sérstakur heiður að láta Ólaf Liljurós Jórunnar Viðar heyrast í fyrsta sinn á tónleikum í þeirri mynd sem hún vildi,“ segir Hallfríður Ólafsdóttir, hljómsveitarstjóri, sem segir áhrif Jórunnar Viðar ómetanleg á tónlistarlíf Íslands. „Hún er eitt af þeim tónskáldum okkar sem náði að festa hönd á og vinna úr kjarna okkar íslenska arfs svo úr varð heillandi tónlist sem er rammíslensk en um leið fínpússuð og mögnuð upp með hinum óendanlega fjölbreyttu blæbrigðum hljóðfæranna,“ segir Hallfríður.

Tónleikarnir hefjast á „Forleik“ eftir Fanny Mendelssohn Hensel. Mendelssohn stundaði bráðung nám í tónsmíðum ásamt yngri bróður sínum, Felix, sem hlaut frægð og frama. En þetta var snemma á 19. öld og Fanny fékk ekki að njóta sín sem tónskáld. Þegar hún varð eldri var henni hreinlega bannað að sinna tónlist, það þótti ekki hæfa konum nema til skrauts, og sum verka hennar í fyrstu gefin út undir nafni bróður hennar. Hún hélt þó ótrauð áfram að semja, sérstaklega eftir að hún fór úr foreldrahúsum. Með nýrri vakningu hafa verk hennar nú fengið að hljóma í auknum mæli.

Verkið „Hrím“, eftir eitt af fremstu samtímatónskáldum Íslendinga, Önnu Þorvaldsdóttur, verður einnig flutt. Anna hefur hlotið margvísleg verðlaun, m.a. Norrænu tónlistarverðlaunin 2012, og var talin meðal áhugaverðustu kventónskálda í heiminum af Washington Post í nýlegri umfjöllun blaðsins um konur í tónlist. Verk hennar eru reglulega flutt um allan heim og gefin út m.a. af Deutsche Grammophon.

Síðasta verk fyrir hlé er verkið „Eldur“ eftir Jórunni Viðar og mun Sinfóníuhljómsveit Norðurlands því leika bæði ballettverk Jórunnar á sömu tónleikunum. Eldur er talsvert styttra verk en Ólafur Liljurós sem verður leikinn eftir hlé en Eldur var saminn við ljóð Einars Benediktssonar. Í verkinu sem og í ljóðinu má heyra lýsingar á logandi eldi sem hjaðnar niður í glæður en blossar svo aftur upp. „Við leikum einnig eitt vinsælasta verk Jórunnar, Eld, og með verkum hennar hljóma fjörugur forleikur eftir Fanny Mendelssohn Hensel og nístandi svalt Hrím Önnu Þorvaldsdóttur svo úr verður litrík veisla blæbrigðaríkrar tónlistar,“ segir Hallfríður að lokum.

Til baka