Fara í efni
Dags Tími
15 .okt '17 20:00

Leikverkið Þú kemst þinn veg byggir á sögu Garðars Sölva Helgasonar sem glímir við geðklofa en tekst á við erfiðleikana á einstakan og heillandi hátt með umbunakerfi sem hann hefur tileinkað sér. Verkið er í senn gefandi, frelsandi og fyndið, en auk þess veitir það einstaka innsýn í lífsbaráttu manns með geðsjúkdóm. Batann og bakslögin, líf á ofsahraða og líf einn dag í einu. 

Í leikverkinu fylgjumst við með persónunni Guðmanni halda fyrirlestur um Garðar Sölva besta vin sinn og umbunakerfið  hans. Fyrirlesturinn tekur heldur óvænta stefnu og þróast ekki beint eins og Guðmann ætlar sér. Allt gengur á afturfótunum, einföldustu hlutir verða flóknir og Guðmann strögglar við að leysa málin. Á köflum brýst leikhúsið inní verkið líkt og ranghugmynd og það skásta sem Guðmanni dettur í hug að gera til að fela stressið er að detta í"  að segja eins og eina sögu inná milli þess sem hann ætlar sér að byrja fyrirlesturinn... 

Þú kemst þinn veg var frumsýnt þann 1. mars 2015 í fyrirlestrarsal Norræna hússins. Það er skemmst frá því að segja að verkið fékk afar góðar viðtökur og jákvæð viðbrögð. Aðstandendur verksins fengu hvatningu hvaðanæva að um að halda sýningum áfram og því var verkið sýnt í Tjarnarbíói í október 2015. Einnig voru nokkrar hátíðarsýningar sýndar í tengslum við útgáfu bókarinnar Glímt við geðklofa síðastliðinn desember, en hún fjallar einmitt um Garðar Sölva og umbunakerfið hans. Þar að auki hefur verkið verið sýnt á Aco alone, leiklistarhátíð á Suðureyri og í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. 

Og nú heldur ferðalag verksins áfram með sýningu á Akureyri 15. október næstkomandi. Athugið að einungis er um þessa einu sýningu að ræða. 

 Sýningin er 50. mínútur. Ekkert hlé.  Aldurshópur 12+

⋆⋆⋆ - Sigríður Jónsdóttir, Fréttablaðið 

"Gert á afar sannfærandi og fyndinn hátt." - Silja Aðalsteinsdóttir, TMM 

 

AÐSTANDENDUR 

Höfundur og leikari: Finnbogi Þorkell Jónsson 

Leikstjóri og dramatúrg: Árni Kristjánsson 

Tæknimaður: Jenný Lára Arnórsdóttir 

Tónlist: Svavar Knútur 

Grafísk hönnun: Bjarki Björgvinsson 

Ljósmyndir: Flores Axel Böðvarsson 

Hjóðupptaka Harpa Fönn Sigurjónsdóttir 

Framleiðandi: Jenný Lára Arnórsdóttir