Fara í efni
Dags Tími
02 .júl '18 12:00

Menningarfélag Akureyrar býður uppá leiðsögn um sýninguna „Stórval í 110 ár“  mánudagana 2. og 16. júlí kl. 12:00 í Menningarhúsinu Hofi.

Á sýningunni eru verk eftir listamanninn Stefán V. Jónsson, betur þekktum undir listamannsnafni hans, Stórval.  Sýningin er haldin í tilefni þess að 110 ár eru liðin frá fæðingu þessa sérkennilega listamanns. Verkin eru flest í eigu afkomenda Stefáns en þeir eru einnig aðstandendur sýningarinnar. 

Tinna Stefánsdóttir langafabarn listamannsins segir frá honum og fjallar um einstaka verk.

Allir eru velkomnir – enginn aðgangseyrir