Fara í efni
Dags Tími
26 .okt '17 17:30

Skjól og skart - handverk og saga íslensku búninganna.  

Kvikmynd um fallegt handverk, hlaðið tilfinningu, menningarsögu og – pólitík.

 

Það er vinsæl iðja „að koma sér upp búning“. Verkið allt er tímafrekt og getur orðið afar dýrt. Hvers vegna tekur fólk sér þetta fyrir hendur þegar búningarnir eru næstum aldrei bornir nú á dögum?

Hópur kvenna tekur þátt í námskeiði til að sauma upphlut og peysuföt. Á meðan þær stunda saumaskapinn segja þær frá því hvers vegna þær sauma sér búning og hvað íslensku búningarnir þýða fyrir þær. Út frá samræðum kvennanna kvikna spurningar sem leitað er svara við, hvort um er að ræða pólitíska þýðingu búninganna á 19. öld eða nýr háttur að bera þá nútildags.

Eftir því sem verki þeirra vindur fram er sýnt handverk búninganna; vefnaðurinn, víravirkið, útsaumurinn, jurtalitunin, knipplunin og svo framvegis.

 https://vimeo.com/214816494

http://gjola.is/ss/is_index.html

Sýningin er 75 mínútur, ekkert hlé. 

Kvikmyndasýningin er haldin í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar.