Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra býður til opinna samráðsfunda víða um land þar sem rætt verður um sjálfbæra þróun á Íslandi. Á fundunum verður fjallað um stöðu sjálfbærni, helstu áskoranir, tækifæri og kosti til framfara en vinna stendur yfir við mótun stefnu Íslands um sjálfbæra þróun. Fundurinn á Akureyri verður haldinn í Hofi mánudaginn 17. apríl kl. 16.
Dagskrá:
- Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Opnunarávarp.
- Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun hjá HÍ.
- Eggert Benedikt Guðmundsson, leiðtogi Sjálfbærs Íslands.
- Guðmundur Heiðar Frímannsson, prófessor emeritus.
- Umræður.
Fundarmönnum verður skipt upp í umræðuhópa sem fjalla um einstök viðfangsefni og mun forsætisráðherra taka þátt í umræðuhópunum.
Boðið verður upp á hressingu á fundinum. Fundarstjóri verður Sigurður L. Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs.
Samstarfsvettvangur um sjálfbæra þróun
Í samræmi við áherslu ríkisstjórnarflokkanna á sjálfbæra þróun, velsæld og réttlát umskipti hefur verið settur á fót samstarfsvettvangurinn Sjálfbært Ísland. Þar koma saman fulltrúar ríkisvaldsins, sveitarfélaga, Alþingis, aðila vinnumarkaðarins og frjálsra félagasamtaka enda krefjast þessi mikilvægu viðfangsefni víðtækrar samvinnu í samfélaginu.
Hlutverk Sjálfbærs Íslands er að hraða aðgerðum til að ná markmiðum um sjálfbæra þróun eins og þau birtast í heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og velsældaráherslum ríkisstjórnarinnar. Sjálfbært Ísland mun einnig vinna að því að réttlát umskipti á öllum sviðum samfélagsins séu leiðarljós í allri stefnumótun og aðgerðum.
Meðal annarra verkefna Sjálfbærs Íslands er að:
- Móta stefnu Íslands um sjálfbæra þróun.
- Þróa, samræma og rýna mælikvarða um sjálfbærni, þ.á m. heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og velsældarvísa.
- Efla þátttöku í fjölþjóðlegu samstarfi um sjálfbæra þróun, þ.á.m. á norrænum vettvangi, í Evrópusamstarfi og meðal Sameinuðu þjóðanna.
- Efla samráð og samhæfingu hins opinbera við sveitarfélögin, atvinnulífið, aðila vinnumarkaðarins og frjáls félagasamtök.
- Kynna framgang og árangur í sjálfbærri þróun til stjórnvalda, samstarfsaðila og almennings.
- Sjálfbærniráð er skipað forsætisráðherra sem er formaður, öðrum ráðherrum í ríkisstjórn, auk fulltrúa frá sveitarfélögum, Alþingi, aðilum vinnumarkaðar og frjálsum félagasamtökum.
Til að samhæfa vinnu hins opinbera hefur verið skipaður stýrihópur Sjálfbærs Íslands. Í stýrihópnum eiga sæti fulltrúar allra tólf ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands auk fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fulltrúi forsætisráðuneytisins er formaður stýrihópsins.
Í framkvæmdahópi Sjálfbærs Íslands situr teymi sérfræðinga frá forsætisráðuneytinu, utanríkisráðuneytinu og Hagstofunni. Framkvæmdahópurinn starfar að þeim verkefnum sem Sjálfbæru Íslandi eru falin. Leiðtogi um sjálfbæra þróun sem er starfsmaður forsætisráðuneytisins leiðir hópinn.