Fara í efni
Dags Tími
28 .okt '18 17:00

Það verður enginn svikinn af glæsilegum tónleikum hins söngelska Álftagerðisbróður Óskars Péturssonar, en hann kemur fram í Hofi þann 28. október nk.

Óskar verður ekki einn á ferð því hann mun fá með sér á svið nokkra góða og söngelska vini. Karl Olgeirsson mun svo fara fyrir hljómsveit sem mun styðja við stjörnurnar.

Gestir: Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Ellen Kristjáns og fleiri.