Fara í efni
Dags Tími
06 .jan '18 18:00

Menningarfélag Akureyrar og Nanna Restaurant kynna:

 

Nýársfögnuður í Hofi.

Hátíðartónleikar, kvöldverður og alvöru GALA-dansleikur.

 

Kvöldið hefst með stórglæsilegum tónleikum þar sem Vínartónlistin ræður ríkjum undir stjórn Daníels Þorsteinssonar. Að tónleikum loknum verður hátíðarkvöldverður borinn fram að hætti Nönnu Restaurant. Hápunktur kvöldsins er nýársdansleikurinn þar sem Sinfóníuhljómsveitin ásamt góðum gestum leikur fyrir dansi.

Fram koma stórsöngvararnir Hanna Dóra Sturludóttir (mezzo sópran), Gissur Páll Gissurarson (tenór), Ágúst Ólafsson (bariton) og Lilja Guðmundsdóttir (sópran) ásamt Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.

Gestgjafar kvöldsins eru félagarnir Arngrímur Jóhannsson flugstjóri og Atli Örvarsson kvikmyndatónskáld.

Ekki missa af veislu ársins!

Miðasala hefst miðvikudaginn 6. des á mak.is  Miðaverð 24900kr Takmarkað miðaframboð!