Fara í efni
#metoo baráttan hefur farið sem bylgja um heim allan í kjölfar þess að leikkonur í Bandaríkjunum stigu fram og sökuðu framleiðandann Harvey Weinstein um kynferðislega áreitni og ofbeldi. En óviðeigandi hegðun, áreitni og ofbeldi virðast ekki láta neina starfsstétt ósnortna. Sunnudaginn 10. desember klukkan 16, á alþjóðadegi mannréttinda, mun fjölbreyttur hópur íslenskra kvenna koma saman í Samkomuhúsinu og lesa frásagnir sem litið hafa dagsins ljós í #metoo baráttunni hér á landi. Konurnar og frásagnirnar sem þær lesa eru úr röðum sviðslistakvenna, tónlistarkvenna, stjórnmálakvenna, fjölmiðlakvenna, íþróttakvenna, kvikmyndagerðarkvenna, kvenna í tæknigeiranum og svo mætti lengi telja.
Dags Tími
10 .des '17 16:00

#metoo baráttan hefur farið sem bylgja um heim allan í kjölfar þess að leikkonur í Bandaríkjunum stigu fram og sökuðu framleiðandann Harvey Weinstein um kynferðislega áreitni og ofbeldi. En óviðeigandi hegðun, áreitni og ofbeldi virðast ekki láta neina starfsstétt ósnortna.

Sunnudaginn 10. desember klukkan 16, á alþjóðadegi mannréttinda, mun fjölbreyttur hópur íslenskra kvenna koma saman í Samkomuhúsinu og lesa frásagnir sem litið hafa dagsins ljós í #metoo baráttunni hér á landi. Konurnar og frásagnirnar sem þær lesa eru úr röðum sviðslistakvenna, tónlistarkvenna, stjórnmálakvenna, fjölmiðlakvenna, íþróttakvenna, kvikmyndagerðarkvenna, kvenna í tæknigeiranum og svo mætti lengi telja.

Allir velkomnir

Enginn aðgangseyrir