Fara í efni
Dags Tími
01 .des '18 16:00

EFNISSKRÁIN ER HÉR

Glæný fagnaðarkantata þar sem kynslóðir og tónlistarstefnur mætast og fagna saman fullveldinu með norðlenskum ofurkröftum.

Fullveldiskantatan „Út úr kofunum“ er nýtt verk í söngleikjastíl eftir Michael Jón Clarke við texta Sigurðar Ingólfssonar. Verkið er ljóðræn útfærsla á þeim breytingum sem verða hjá þjóðinni frá því hún byrjar að líta hugdjarfari en fyrr til framtíðar og losa af sér hlekki og „klakabönd“ fortíðar. Þar er rakin, án þess að um beina sagnfræði sé að ræða, vegferð og hugarfarsbreytingar á tiltölulega stuttu en gríðarlega mikilvægu og kraftmiklu tímabili í lífi þjóðar, frá fullveldi til lýðveldis. Hver einsöngvari hefur sitt hlutverk sem ekki verður ljóstrað upp um hér en á vissan hátt má segja að um sé að ræða einkasamtal þjóðarinnar við sjálfa sig.


Stjórnandi er Michael Jón Clarke. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Hymnodia styðja flutninginn með fulltingi nemenda í tónlistarskólum á Norðurlandi. Tónleikarnir verða í Hamraborg í Hofi á Akureyri á 100 ára afmælisdegi fullveldisins. Verkefnið hlaut styrk frá Akureyrarstofu, Tónskáldasjóði RÚV og Stefs, Tónskáldasjóði Bylgjunnar og Stöðvar 2 og er styrkt af Afmælisnefnd aldarafmælis fullveldis Íslands.

 

Höfundur: Michael Jon Clarke 

Flytjendur: Stefán Jakobsson (Stebbi Jak), Þórhildur Örvarsdóttir og Gísli Rúnar Víðisson. Hymnodia, stjórnandi: Eyþór Ingi Jónsson, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, ungmennakór, „Æskuraddir Fullveldisins“, og ungir strengja- leikarar, „Strengjasveit Fullveldisins“. Æskuröddum fullveldisins stjórnar Sigrún Magna Þórsteinsdóttir