Fara í efni
VERÐANDI
Dags Tími
28 .apr '23 20:00

Hvað gerist ef þú gengur afturábak í gegnum matvöruverslun? Ef þú fylgir ekki leikreglum rýmisins?

Dansleikhúsið Byrja, (bíb) búið. fjallar um kóreógrafíu hversdagsleikans og spyr, hver má hreyfa sig, hvernig, hvar og hvenær? Hvert rými sem við stígum inn í gefur okkur merki sem segja til um hvernig skal hreyfa sig innan þess. Án þessara forskrifta missum við áttaskyn.

Hvað gerist ef þú ferð gegn kóreógrafíunni, hinum óskrifuðu reglum rýmisins? Og hvað þarf mikið til, til þess að það sé frávik? Ef við þá nokkurn tímann leyfum okkur slíkt?

Sýningin var unnin í samsköpun innan hópsins. Aðferðin var rannsókn á regluverkum ólíkra rýma og efnið skapað með tilraunum innan hina ýmsu almenningsrýma, með aðferðum Site-specific leikhússins. Að lokum var rannsókninni fundin staður í rými leikhússins og reglur þess um hreyfingu skoðaðar. Því leikhúsið hefur sína forskrift og óskráðu reglur eins og öll önnur almenningsrými.

Leikstjóri og höfundur: Anna Róshildur
Aðstoðaleikstjóri: Katrín Lóa Hafsteinsdóttir
Flytjendur og meðhöfundar: Bjartey Elín Hauksdóttir, Inga María Olsen, Sóley Ólafsdóttir
Tónlist og hljóðhönnun: Elías Geir Óskarsson og Anna Róshildur
Grafísk hönnun: Þorgeir K. Blöndal
Þakkir: Egill Ingilbertsson, Dansverksstæðið, Elín frá sundlaug Akureyrar, Nettó.

Verkið var upphaflega sýnt sem útskriftarverk af Sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands, apríl 2022. Verkið er um 50 mín í flutningi. 

Viðburðurinn er styrktur af VERÐANDI liststjóði sem er samstarfverkefni Akureyrarbæjar, Menningarhússins Hofs og Menningarfélags Akureyrar.