Leikfélag Akureyrar frumsýnir söngleikinn Litla hryllingsbúðin í Samkomuhúsinu í október 2024.
Við leitum að leikkonum 20-35 ára í hlutverk AUÐAR.
Hæfnikröfur eru:
Prufurnar verða haldnar í Reykjavík 25. apríl og á Akureyri 1. maí.
Prufað verður í söng og leik. Umsækjandur skulu læra einræðu og hluta af lagi Auðar á íslensku. Sjá hér.
Hér er hlekkur á lagið Snögglega Baldur í þremur útgáfum til undirbúnings..
Notast verður við playback.
Ef þú ert leikkona sem er tilbúin að taka þátt í æfinga- og sýningarferli frá ágúst og fram á haustið, þá endilega skráðu þig!
Þórunn Geirsdóttir sýningastjóri gefur allar nánari upplýsingar á netfanginu thorunn@mak.is