Fara í efni

Spennandi og fjölbreyttur febrúar

Febrúar er svo sannarlega spennandi og fjölbreyttur í Menningarhúsinu Hofi og Samkomuhúsinu!

Nú eru síðustu sýningarnar af barnaverkinu Litla skrímslið og stóra skrímslið framundan. Aðeins tvær sýningarhelgar eru eftir og því um að gera að pikka í alla sem fengu gjafabréf á verkið í jólagjöf. 

Myndlistarmaðurinn Stefán Boulter opnar myndlistarsýningu sína  Eilífð í Augnabliki í Hofi laugardaginn 3. febrúar kl. 16. Verk Stefáns eru unnin með olíu á striga. Öll hjartanlega velkomin á opnunina. 

Viðburðurinn Þrek og Tár fer fram í Hofi 17. febrúar. Þar verða dægurperlum Hauks Morthens og Erlu Þorsteins gerð góð skil. Ferill Erlu og Hauks verður rifjaður upp með skemmtilegum hætti. 

Sunnudaginn 18. febrúar er komið að fjölskyldu- og vísindatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands; Pláneturnar – Ævintýri sólkerfisins. Enginn annar en Stjörnu-Sævar leiðir tónlistagesti um leyndardóma himinhvolfisins á meðan sveitin flytur Pláneturnar eftir Gustav Holst og áhrifamiklu myndefni af sólkerfinu er varpað á tjald. Þetta verður ógleymanlegur viðburður!

Þann 23. febrúar er komið að stóru stundinni þegar verkið And Björk, of course verður frumsýnt í Samkomuhúsinu. Verkið er eftir Þorvald Þorsteinsson sem er líklega þekktari fyrir barnaverkið Skilaboðaskjóðan og bækurnar um Blíðfinn. Leikstjóri er Gréta Kristín Ómarsdóttir. Fjöldi allur af þekktum leikurum mynda leikhópinn og þeirra á meðal Jón Gnarr og Sveppi. Athugið að sýningin er ekki fyrir viðkvæma. Miðasala í fullum gangi á mak.is. 

Að lokum viljum við minna á að opið er fyrir umsóknir í Upptaktinn, tónsköpunarverðlaun barna og unglinga. Öll börn í 5.-10. bekk á Norðurlandi eystra geta sent inn tónverk. Valin verk verða fullunnin með fagfólki í tónlist. Nánar á mak.is. 

Sem sagt; skemmtilegur tími framundan þar sem allir ættu að gefa fundið eitthvað við sitt hæfi. Endilega fylgist með á mak.is

Til baka