Fara í efni

Hjalti Rúnar tekur við hlutverki stóra skrímslisins

Vegna forfalla mun Hjalti Rúnar Jónsson taka við hlutverki stóra skrímslisins í barnaverkinu Litla skrímslið og stóra skrímslið. Hjalti Rúnar hefur margoft leikið hjá Leikfélagi Akureyrar, til að mynda í Óvitum, Lilju, Rocky Horror, Kabarett og Benedikt búálfi. Hann hlaut tilnefningu til Grímuverðlauna fyrir leik sinn í Galdragáttinni hjá leikhópnum Umskiptingar sem sýnt var í Samkomuhúsinu í samstarfi við Leikfélag Akureyrar. Bjóðum við Hjalta Rúnar velkominn til starfa!

Litla skrímslið og stóra skrímslið verður frumsýnt í Hofi 13. janúar. Þau sem fengu gjafabréf í jólapakkann geta haft samband við  miðasöluna í Hofi til að velja sér sýningardag.

Til baka