Fara í efni
Eimur, Íslensk verðbréf og Vaðlaheiðargöng hf. bjóða til opins fundar og sýningar á úrslitaverkefnum í hugmyndasamkeppni Eims. Yfirskrift samkeppninnar er nýting lághitavatns á Norðurlandi eystra.
Dags Tími
13 .jún '17 14:00

Úrslit í hugmyndasamkeppni og kynning á tillögum

Þriðjudagur 13. júní kl. 14-16 í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri

 

Eimur, Íslensk verðbréf og Vaðlaheiðargöng hf. bjóða til opins fundar og sýningar á úrslitaverkefnum í hugmyndasamkeppni Eims. Yfirskrift samkeppninnar er nýting lághitavatns á Norðurlandi eystra.

 

Alls bárust 14 tillögur sem verða til sýnis á fundinum

Dómnefnd hefur valið fjórar bestu tillögurnar og munu fulltrúar hverrar þeirra halda stutta kynningu á sinni tillögu. Að lokum mun dómnefnd veita verðlaun fyrir bestu tillöguna.

 

Á fundinum verða einnig haldnir þrír örfyrirlestrar: 

  • Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Íslenski ferðaklasinn
    - Hvað felst í ábyrgri ferðaþjónustu?
  • Guðrún Brynleifsdóttir, Landsvirkjun
    – Tækifæri í orkutengdri ferðaþjónustu
  • Sigurður Ingi Friðleifsson, Orkusetur
    – Fjölnýting jarðvarma

 

Fundurinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis.
Tekið er á móti skráningum á viðburðinn HÉR.