Fara í efni
Miðasala hefst 20. ágúst kl. 10.00
Dags Tími
03 .okt '15 20:00
Verð: 8900

Tina (Anna Mae Bullock) fæddist í Nutbush, Tennessee þann 26. nóvember árið 1939. Hún hóf söngferil sinn aðeins 16 ára gömul þegar hún kynntist tilvonandi eiginmanni sínum Ike Turner.  Söngrödd Tinu var engri lík, krafturinn, tilfinningin og sviðsframkoman heillaði áheyrendur upp úr skónum, ný stjarna var fædd.

Ike og Tina gerðu það gott á sviði rythma, sálar og blústónlistar og lög eins og A fool in love, Its gonna work out fine, Nutbush city limits og Proud Mary skutu Tinu upp á stjörnuhimininn svo eftir var tekið um allan heim.

Þó frægðarsól Tinu hafi sannarlega skinið skært á árunum 1960-1978, eða þar til hún skildi við Ike, átti hún eftir að ná enn lengra.

Sólóplatan Private Dancer kom út árið 1984 og seldist í milljónum eintaka víða um heim. Breiðskífan innihélt lög eins og Whats love got to do with it, Better be good to me og Private dancer. Framhaldið þekkjum við öll. Tina hefur unnið til fjölda verðlauna og verið ein vinsælasta og dáðasta söngkona veraldar í áratugi. 

Tina lagði sönginn á hilluna árið 2009 þegar hún stóð á sjötugu á hátindi ferlis síns, ein eftirsóttasta söngstjarna fyrr og síðar, og enn með flottustu fótleggi heims.

Tina ber titilinn Drottning Rokksins, því hún er “simply the best”.

Það er íslenskt stórskotalið tónlistarmanna sem stígur á sviðið og flytur öll bestu lögin frá ferli Tinu. 

Söngkonurnar Sigríður Beinteinsdóttir, Bryndís Ásmundsdóttir, Stefanía Svavarsdóttir, Erna Hrönn og Regína Ósk eru fremstar í flokki ásamt dönsurum og hljómsveit Rigg Viðburða.

 

Danshöfundur: Yesmine Olsson

Búningar: Filippía Elisdóttir

Stjórnandi: Friðrik Ómar

Framleiðandi: Rigg Viðburðir

 

Uppselt er á fyrri tónleikana er aukatónleikum hefur verið bætt við klukkan 23.

Hér má sjá glæsilegt atriði úr sýningunni:

https://www.youtube.com/watch?v=VSy0gGy-q78