Fara í efni
Dags Tími
26 .mar '17 17:00

Sunnudaginn 20 mars 2017 kl. 17:00 verða haldnir tónleikar í Hofi til styrktar minningarsjóði um Þorgerði S. Eiríksdóttur.


Þorgerður lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum á Akureyri og var nýkomin til London í framhaldsnám er hún lést af slysförum í febrúar 1972. Ári síðar stofnuðu aðstandendur Þorgerðar ásamt Tónlistarskólanum og Tónlistarfélagi Akureyrar minningarsjóð, til að styrkja efnilega nemendur frá Tónlistarskólanum á Akureyri til framhaldsnáms. Eru tónleikarnir helsti vettvangur til að styrkja sjóðinn, auk þess sem sjóðurinn hefur tekjur af sölu minningarkorta.


Á tónleikunum koma fram nemendur á efri stigum og flytja fjölbreytta og skemmtilega efnisskrá.


Aðgangur er ókeypis, en tekið er á móti frjálsum framlögum