Fara í efni
Dags Tími
22 .feb '17 20:00

Söngkeppni Menntaskólans á Akureyri 2017 verður haldin í Hamraborg þann 22. febrúar klukkan 20.00. Hæfileikaríkir menntskælingar verða í fyrirrúmi en dómarar verða Stefán Jakobsson, Pálmi Gunnarsson og Lára Sóley Jóhannsdóttir. 

Kolfinna Frigg Sigurðardóttir og Diljá Ingólfsdóttir munu sjá um að kynna herlegheitin. 

Stórskemmtilegur viðburður fyrir alla aldurshópa.