Fara í efni
Dags Tími
11 .jún '16 17:00

Hinsegin kórinn hefur frá upphafi lagt ríka áherslu á fjölbreytt lagaval og er efnisvalið á komandi tónleikum þar engin undantekning.

 

Hinsegin kórinn var stofnaður síðsumars 2011 og hefur frá þeim tíma komið víða fram, bæði hér heima og á erlendri grundu. Sumarið 2012 tók kórinn þátt í hinsegin dögum í Færeyjum en tveimur árum síðar steig kórinn á stokk í Dublin á alþjóðlegu kóramóti hinsegin kóra og naut þar mikillar hylli. Sumarið 2015 hélt hann svo tónleika í London ásamt breska kórnum Pink Singers. Þetta árið var ákveðið að leggja land undir fót og fara til Akureyrar.

 

Kórinn syngur undir stjórn Helgu Margrétar Marzellíusardóttur en meðleikari kórsins er Jón Birgir Eiríksson