Fara í efni
Söguleg kómísk, kosmísk og kærleiksrík spunasýning
Dags Tími
31 .ágú '16 20:00
01 .sep '16
02 .sep '16
03 .sep '16
04 .sep '16
05 .sep '16
06 .sep '16
07 .sep '16
08 .sep '16
09 .sep '16
10 .sep '16
11 .sep '16
12 .sep '16
13 .sep '16
14 .sep '16
15 .sep '16
16 .sep '16
17 .sep '16
18 .sep '16
19 .sep '16
20 .sep '16
21 .sep '16
22 .sep '16
23 .sep '16
24 .sep '16
25 .sep '16
26 .sep '16
27 .sep '16
28 .sep '16
29 .sep '16
30 .sep '16
01 .okt '16
02 .okt '16
03 .okt '16
04 .okt '16
05 .okt '16
06 .okt '16
07 .okt '16
08 .okt '16
09 .okt '16
10 .okt '16
11 .okt '16
12 .okt '16
13 .okt '16
14 .okt '16
15 .okt '16
16 .okt '16
17 .okt '16
18 .okt '16
19 .okt '16
20 .okt '16
21 .okt '16
22 .okt '16
23 .okt '16
24 .okt '16
25 .okt '16
26 .okt '16
27 .okt '16
28 .okt '16
29 .okt '16
30 .okt '16
31 .okt '16
Verð: 2900

Söguleg, kómísk, kosmísk og kærleiksrík spunasýning!

 

„Landnámi lýkur aldrei. Það eru alltaf landnemar. Landnemar í von um líf í friði hinu meginn við hafið.“

 

Geta trúðar sviðsett „versta“ leikrit Íslandssögunnar?  Fjórir trúðar hafa í kærleika og einlægni tekið að sér það krefjandi verkefni að sviðsetja leikrit Matthíasar Jochumssonar sem var frumsýnt í skemmu á Eyrinni árið 1890 í tilefni af þúsund ára afmæli landnáms í Eyjafirði. Uppsetningin fyrir 125 árum síðan var íburðarmikil og glæsileg en sú uppfærsla er fyrsta og eina uppsetningin á verkinu . Hvers vegna hefur verkið ekki verið sett upp síðan þá? Svarið virðist liggja í augum uppi þegar höfundurinn sjálfur talar um það sem  „sáraófullkomið drama“. Verkið er einfaldlega ekki nógu gott. Hvað er þá til ráða? Geta trúðar, sem eru fróðir og forvitnir um allt sem viðkemur Eyjafirði, náð að glæða verkið lífi?  

Helgi magri er 320. sviðssetning Leikfélags Akureyrar.  Þessi trúðasýningin er samsköpun leikhópsins sem útfærir alla listræna þætti sýningarinnar sjálfur. Leikmynd, búninga, lýsingu, myndband og sviðsetningu. Trúðarnir stýra sjálfir allri tækni. Engin sýning er eins, þær eru allar einstakar

Leikarar og höfundar: 

Benedikt Karl Gröndal/Pétur 

Halldóra Malín Pétursdóttir/Tómas

Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir /Brynhildur

Kjartan Darri Kristjánsson/Sigfús 

.Listrænir stjórnendur og höfundar: Jón Páll Eyjólfsson og Þóroddur Ingvarsson.

Sérstakar þakkir:

Magnús Viðar Arnarsson, Bjarki Þór Árnasson, Lárus Heiðar Sveinsson, Gunnar Sigurbjörnsson.

Íris Eggertsdóttir. Auðunn Níelsson. Þórunn Geirsdóttir. 

 

Frumsýning 2. september 2016  í Samkomuhúsinu

Lengd: 80 mínútur ekkert hlé

Aldur: 12+