Fara í efni
Dags Tími
18 .nóv '16 20:00
19 .nóv '16
20 .nóv '16
21 .nóv '16
22 .nóv '16
23 .nóv '16
24 .nóv '16
25 .nóv '16
26 .nóv '16

LEIKNAR SENUR, TÓNLIST, BRELLUR OG HÁRBEITT SPAUG! 

 

Halldóra Geirharðsdóttir og Ólafía Hrönn Jónsdóttir sýna sinn innri mann

 

„Það er í raun ekki að marka konu sem er nýbúin að snerta karlmann.“

 

Hannes og Smári, „annað sjálf“ okkar kraftmiklu leikkvenna, þeirra Halldóru Geirharðsdóttur og Ólafíu Hrannar Jónsdóttur, í hárbeittum nýjum gamanleik.

Félagarnir landsfrægu, Hannes og Smári, koma hér saman í hljómsveit sinni Úlfunum og lofa „eldfjörugri kvöldstund með leiklist, ljóðum, bardagalist og frumsaminni óútgefinni tónlist.“ Að eigin sögn munu félagarnir fara með áhorfendur í „listrænan rússíbana, segja sögur um uppruna sinn, líf og áhrifavalda  ̶  Þetta eru leiftrandi sögur, dramatískar, ágengar en um leið fyndnar.“

 Í tengslum við sýninguna gefa þeir Hannes og Smári út splunkunýjan geisladisk sem ber nafnið „Kíldu myg kaldann“ og er til sölu í forsal Samkomuhússins á 2200 krónur.

Úr gagnrýni

„Áhorfendur grétu af hlátri"  DK. Hugras

„Ólafía og Halldóra eru eins og fiskar í vatni í túlkun sinni á Hannesi og Smára"  SBH. Mbl 

 „Ólafía Hrönn og Halldóra eru báðar framúrskarandi leikarar" DK. Hugras

„Miklar hæfileikakonur sem leika á als oddi" SJ. Fréttabl.

„Bráðfyndin atriði"  SJ. Fréttabl.

„Drepfyndin" GB. Víðsjá 

 

Höfundar: Halldóra Geirharðsdóttir,

Jón Páll Eyjólfsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir

Leikstjórn: Jón Páll Eyjólfsson

Leikmynd: Brynja Björnsdóttir

Búningar: Brynja Björnsdóttir

Lýsing: Magnús Helgi Kristjánsson

Tónlist: Hannes og Smári

Leikgervi: Árdís Bjarnþórsdóttir

Hljóð: Baldvin Þór Magnússon

Leikarar: Elma Stefanía Ágústsdóttir, Halldóra Geirharðsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Kolbeinn Orfeus Eiríksson

 

321. sviðsetning Leikfélags Akureyrar

Hannes og Smári er samstarfsverkefni Borgarleikhússins og Leikfélags Akureyrar 

Frumsýnt í október 2016 í Borgarleikhúsinu

 Lengd 100 mínútur, eitt hlé er á sýningunni. 

Aldur: 16+