Fara í efni

Þorláksmessutónleikar Bubba og Áramótaskop Ara Eldjárns

Það eru aðeins fimm dagar til jóla og því vonandi sem flestir komnir í jólaskap. Þau sem eiga miða á Þorláksmessutónleika Bubba eiga svo sannarlega von á góðu á fimmtudagskvöldinu. Tónleikaröð Bubba er ein sú allra langlífasta tónleikaferð í aðdraganda jóla og margir sem geta ekki hugsað sér aðventuna án þeirra. Tónleikarnir hefjast kl. 20 en það er fyrir löngu orðið uppselt.

Á föstudagskvöldinu er komið að Ara Eldjárn og Áramótaskopinu hans. Ari er einn allra vinsælasti uppistandari þjóðarinnar og verður með tvennu á föstudagskvöldið, fyrri sýningin er klukkan 19 en sú síðari kl. 22. Örfá sæti eru laus á mak.is. 

Að lokum minnum við á gjafabréfin okkar sem eru tilvalin í jólapakkann. Gjafabréfin fást í miðasölu Hofs og á mak.is 

Til baka