Fara í efni

Reggie Watts mætir í Samkomuhúsið

Hinn ótrúlegi grínisti, tónlistamaður, leikari og rithöfundur Reggie Watts sækir Ísland heim á ný! Hann kom síðast til landsins 2010 en mikið hefur gerst síðan og er hann ein skærasta grínstjarna heims þar sem hann blandar saman tónlist og uppistandi á einstakan hátt.

Reggie Watts er hvað frægastur fyrir að vera hljómsveitarstjórinn í The Late Late Show with James Corden. Hann var einnig DJinn á Emmy-hátíðinni 2020.

Netflix-þátturinn hans, Spatial fékk rífandi góða dóma og New York times kallaði hann „rússíbana af vitleysu og veruleikaflótta" og sögðu Reggie vera „áhrifamesta absúrdistann í grínheiminum."

Reggie Watts hefur komið fram á ýmsum hátíðum svo sem Bonnaroo, SXSW, Bumbershoot, Just for Laughs og Pemberton.

Reggie Watts er einstakur grínisti, þar sem allt grín og tónlist er spunnið á staðnum. Búið ykkur undir algjörlega einstaka og ógleymanlega kvöldstund.

Watts mætir í Samkomuhúsið 25. apríl. Sýningin er 90 mínútur, ekkert hlé. Miðasala er hafin á mak.is

Til baka