Fara í efni

Ert þú "með'a"? Eltarar óskast!

Leikfélag Akureyrar og Hof óska eftir sjálfboðaliðum til þess að vera eltarar í FEN sem er krefjandi eltingarleikur fyrir alla 18 ára og eldri um stræti og torg. Eltari er sá sem vaktar stöðvar leiksins og “klukkar” þá leikmenn sem hann nær. Um leið gerir hann þá sjálfa að elturum.
Okkur vantar einstaklinga með þor, þrek, herkænsku og leikgleði.
Allir eltarar fá að launum áskriftarkort að vetrardagskrá MAk 2015-2016
Sendið inn umsókn á jonpall@mak.is

Til baka