Fara í efni

100 ára afmælishátíð Leikfélags Akureyrar 19. apríl 2017

Í dag miðvikudaginn 19. apríl  fagnar Leikfélag Akureyrar 100 ára afmæli sínu. Af þessu tilefni verður blásið til afmælisveislu í Samkomuhúsinu þar sem Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson heldur erindi, Hundur í óskilum fara með gamanmál og fluttar verða tónlistarperlur úr 100 ára sögu Leikfélagsins ásamt fleiru. Auk þessarar afmælishátíðar eru fjölmargir viðburðir fyrirhugaðir á afmælisárinu, í haust kemur út afmælisrit þar sem saga félagsins frá 1992 til dagsins í dag er rakin og þá ætlar MAK í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands að standa fyrir veglegri afmælistónlistarveislu á haustmánuðum.
 
Til hamingju með daginn!
Til baka