Fara í efni
Dags Tími
21 .des '18 20:30

Bylgjan í samvinnu við prime kynna Þorláksmessutónleikaröð Bubba Morthens

Þorláksmessutónleikaröð Bubba Morthens er ein allra langlífasta tónleikahefð í aðdraganda jóla. Bubbi bregður ekki út af vananum þetta árið og heldur af stað með kassagítarinn. Hann verður á kunnuglegum slóðum. Tónleikaröðin hefst i Bæjarbíói í Hafnarfirði föstudagskvöldið 14. desember. Síðan verður haldið á Akranes og Akureyri og endað á sjálfa þorláksmessu í Eldborgarsal Hörpu. Dagskráin er þessi

14. desember Bæjarbíó Hafnarfirði
19. desember Bíóhöllin Akranesi
21. desember Hof Akureyri
23. desember Eldborg Reykjavík

Miðasala á tónleikana í Hofi hefst á mak.is föstudaginn 28. september kl 10:00. Allar nánari upplýsingar eru á prime.is, og á facebook síðum Bubba Morthens og Prime