Fara í efni
Dags Tími
21 .des '17 20:30

ÞORLÁKSMESSUTÚR BUBBA MORTHENS 2017

 

Í ár bregður Bubbi ekki út af vananum með að halda þorláksmessutónleika víðsvegar um landið en þó er breyting á þar sem hann bætir við einum viðkomustað í ár.  Það  er hið rómaða Bæjarbíó í Hafnarfirði en hann mun hefja þorláksmessutúrinn þar í ár.

 

Fáar hefðir í tónlist hafa orðið jafn lífseigar og þorláksmessutónleikarnir hans Bubba og eru þeir orðnir fastur liður í undirbúningi jólanna hjá fjölda fólks.  Margir koma á tónleikana og enn fleiri hlusta á útsendingu Bylgjunnar heimafyrir eða í bílnum þegar verið er að ganga frá síðustu gjöfunum.  Eitt er víst að fyrir marga myndi vanta mikið í jólhaldið ef ekki væru þorláksmessutónleikar Bubba Morthens

 

STAÐSETNINGAR  OG DAGSETNINGAR

 

Þeir staðir  sem Bubbi mun heimsækja á Þorláksmessutúrnum þetta árið eru

 

13. des         Bæjarbíó Hafnarfirði

17. des         Valaskjálf Egilsstöðum

19. des         Bíóhöllin Akranesi

21. des         Hof Akureyri

23. des         Harpa Reykjavík