Einleikstónleikar Alexanders Edelstein er hluti af Listviðburðaröð VERÐANDI í tilefni af 10+1 árs afmæli Menningarhússins Hofs.
Tónleikar Alexanders Edelstein eru haldnir í tilefni af námslokum hans við Listaháskóla Íslands en þaðan útskrifaðist hann nýlega sem einleikari á píanó.
Alexander spilar Rachmaninoff Corelli variations og Beethoven sónötu op.10 no. 3 ásamt öðrum völdum verkum.