LÝSA - rokkhátíð samtalsins - verður haldin 7. og 8. september 2018 í Hofi á Akureyri.
Forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir setur hátíðina kl 12:00 föstudaginn 7. september og Ólafur Stefánsson handboltakappi flytur ávarp.
LÝSA er vettvangur fyrir hressileg samtöl um samfélagið þar sem allir geta komið og varpað ljósi á sín málefni. Á hátíðinni verða félagasamtök, stjórnmálaflokkar og stofnanir með fjörlegar umræður og málþing í bland við tónlistaratriði og aðrar uppákomur. Markmið hátíðarinnar er að hvetja til uppbyggjandi skoðanaskipta milli almennings, félagasamtaka og stjórnmálafólks.
Nánari upplýsingar um hátíðina má finna á lysa.is.