Þá er komið að því að nemendur yngsta stigs á haustönn hjá LLA sýni afrakstur þessarrar annar. Einfaldleikinn verður í fyrirrúmi og notast leiklsitarnemendur hvorki við búninga, leikmuni né förðun. Leikarinn berskjaldaður eins og hann gerist bestur. Þau hafa þjálfast í persónusköpun, látbragðsleik sem og senuvinnu. Nemendur hafa meðal annars verið að vinna með eigin tilfinningar, hlustun og raddbeitingu. Foreldrum, forráðamönnum og ættíngjum er boðið að koma á sýningu í Samkomuhúsinu mánudaginn 27. nóvember klukkan 17:15 í Samkomuhúsinu. Sjáumst hress