Fara í efni
Dags Tími
06 .maí '18 17:00

KÍTÓN, félag kvenna í tónlist, stendur nú fyrir klassískri tónleikaröð í fyrsta sinn og verða haldnir tónleikar bæði á Akureyri og í Reykjavík.

 

Á fyrstu tónleikunum sem fram fara í Hofi 6. maí koma fram Erla Dóra Vogler, mezzósópran, og Eva Þyri Hilmarsdóttir, píanóleikari en þær munu flytja sönglög eftir Jórunni Viðar. Erla Dóra og Eva Þyri halda upp á aldarafmæli Jórunnar Viðar árið 2018 með fjölda tónleika innan sem utan landsteinanna, og útgáfu geisladisks með söngverkum hennar.

Jórunn Viðar (1918-2017) er meðal dáðustu tónskálda þjóðarinnar og var mikill frumkvöðull á því sviði. Hún var fyrsta íslenska konan með próf í tónsmíðum og eina konan í Tónskáldafélagi Íslands í um tvo áratugi. Hún var fyrst Íslendinga til að semja kvikmyndatónlist, samdi fyrsta íslenska ballettinn og fyrsta píanókonsertinn í fullri lengd.

Markmið tónleikanna er að kynna þann framúrskarandi og fjölbreytta arf söngljóða sem hún lét þjóðinni í té á starfsævi sinni.

 

Tónleikarnir eru styrktir af Tónlistarsjóði, Tónlistarsjóði Hofs og Samkomuhússins og Akureyrarstofu.