Fara í efni
Dags Tími
27 .maí '18 17:00

KÍTÓN, félag kvenna í tónlist, stendur nú fyrir klassískri tónleikaröð í fyrsta sinn og verða haldnir tónleikar bæði á Akureyri og í Reykjavík.

 

Konur eru konum bestar – íslenskar konur í ljóðlist og tónlist 27. maí kl.17

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari hafa löngum verið forvitnar um lög og ljóð íslenskra kvenna. Þær hafa því búið til efnisskrá með lögum íslenskra kventónskálda við ljóð íslenskra kvenljóðskálda,

Tónlistin sem verður flutt á tónleikunum kemur víða við, allt frá gullfallegum náttúrulýsingum Jórunnar Viðar yfir í glænýja tónlist eftir eitt af okkar meira spennandi ungtónskáldum Sunnu Rán Wonder. Á tónleikunum verður einnig flutt verkið Hvolf eftir Önnu Þorvaldsdóttur, sem hún samdi fyrir tónlistarkonurnar árið 2010, en hún er nú á mikilli sigurgöngu um hinn klassíska tónlistarheim. Einnig verða flutt verk eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, Þuríði Jónsdóttur, Þóru Marteinsdóttur og Elínu Gunnlaugsdóttur.

 

Tónleikarnir eru styrktir af Tónlistarsjóði og Tónlistarsjóði Hofs og Samkomuhússins.