Fara í efni
Dags Tími
12 .nóv '22 16:00

Karlakór Akureyrar Geysir fagnar 100 ára samfelldu karlakórastarfi á Akureyri. Fyrstu tónleikar Geysis voru haldnir 17. desember 1922 og Karkakór Akureyrar hélt sína fyrstu tónleika í ársbyrjun 1930. Sameinaðir hafa þeir kórar starfað frá 1990.

KAG býður upp á fjölbreytt efnisval sem um leið spannar lengra tímabil í karlakórasöng þótt ekki sé alveg einfalt að túlka 100 ára tímabil í hefðbundinni dagskrá. Sérstaklega vill kórinn höfða til eldri félaga sem eru boðnir velkomnir - (jafnvel til að taka þátt í söngnum og stíga á svið) - og í því skyni býðst gömlum félögum kórsins(kóranna) að skrá sig og nýta tilboð 2:1 í leiðinni.